Saga Capital Fjárfestingarbanka var í dag veittur formlegur aðgangur að kauphöllinni í Kaupmannahöfn en fyrir er bankinn aðili að kauphöllunum á Íslandi, í Helsinki og í Stokkhólmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Saga Capital.

Þessar kauphallir starfa saman undir nafninu OMX Nordic Exchange og eru hluti af NASDAQ OMX Group sem er stærsta kauphallarfyrirtæki í heimi með þjónustu í sex heimsálfum og yfir 3.900 félög í viðskiptum.