Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við að selja skuldabréf Byggðastofnunar. Skuldabréfin voru seld í lokuðu skuldabréfaútboði og nam útgáfufjárhæðin einum milljarði króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Saga Capital.

Þar kemur fram að töluverð umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum og fyrirhugað er að bæta við flokkinn síðar á þessu ári en heimilt er að stækka skuldabréfaflokkinn í þrjá milljarða króna.

Með skuldabréfasölunni er Byggðastofnun að sækja sér fé til að fjármagna lánveitingar stofnunarinnar til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni, meðal annars til nýsköpunarstarfsemi.

Þá kemur fram að skuldabréf Byggðastofnunar er 25 ára jafngreiðslubréf í opnum flokki sem endurspeglar HFF 34 skuldabréfaflokk Íbúðalánasjóðs. Nafnvextir flokksins eru 5% og afborganir tvisvar á ári.

Askar Capital veitti Byggðastofnun ráðgjöf um lántökuna og aflaði tilboða frá umsjónarbönkum.  Saga Capital annaðist sölu skuldabréfanna og skráningu þeirra í Kauphöllinni.