Saga fjárfestingabanki
Saga fjárfestingabanki
© vb.is (vb.is)
Vegna breytinga á starfsemi Saga fjárfestingabanka hf. mun bankinn hætta viðskiptavakt með hlutabréf Icelandair Group hf. frá og með 1. september næstkomandi. Viðskiptavakt NBI hf. (Landsbanka) helst áfram óbreytt. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group.

Eins og fram hefur komið mun MP banki kaupa fyrirtækjaráðgjöf Sögu Fjárfestingarbanka. Í því felst þjónusta og ráðgjöf varðandi kaup, sölu og samruna fyrirtækja sem og fjármögnun fyrirtækja og stofnana, umsjón með útboðum og skráningu verðbréfa og skylda starfsemi.