Breska verslunarkeðjan Sainsbury´s hefur lýst áhuga sínum á að kaupa hlut skilanefndar Landsbankans í Iceland Foods þegar hluturinn verður seldur.

Í samtali við Daily Mail sagði forstjóri Sainsbury´s, Neil Sachdev, að allir horfðu nú til Iceland. Þegar og ef fyrirtækið verður sett í söluferli muni Sainsbury´s skoða það.

Frétt Daily Mail í heild sinni.