Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin (NSA) hefur í mörg ár njósnað um eigendur iPhone-síma frá Apple, snjallsímum sem keyra á Android-stýrikerfi Google og BlackBerry, samkvæmt heimildum þýska tímaritsins Der Spiegel. Blaðið sagði um síðustu helgi að NSA geti orðið komið fyrir njósnabúnaði í iPhone-símum sem geri stofnuninni kleift að komast yfir ýmsar upplýsingar sem í símunum eru, s.s. smáskilaboð, skilaboð á símasvara og fleira til. Þá hafði Der Spiegel eftir bandaríska öryggis- og dulmálssérfræðingnum Jacob Applebaum, sem unnið hefur talsvert með Wikileaks í gegnum tíðina, að sérfræðingar NSA geti meira aðs segja fjarstýrt myndavél og hljóðnema í iPhone-símum.

Applebaum er meðhöfundur að grein Der Spiegel, að því er fram kemur í umfjöllun um málið á netmiðlinum VentureBeat . Hann hélt erindi um málið sem hægt er að sjá hér að neðan.

Í tilkynningu sem Apple hefur sent frá sér vegna málsins segir að fyrirtækið hafi aldrei unnið með NSA, hvað þá gert hugbúnað sem geri stofnuninni kleift að njósna um eigendur símanna.