Björn Þorvaldsson saksóknari segir dóminn í Al Thani-málinu vera í samræmi við þau alvarlegu brot sem framin voru. Hann býst við að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi vegna aðildar sinnar að Al Thani-málinu. Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður bankans hlaut fimm ára dóm, Ólafur Ólafsson hlaut þriggja og hálfs árs dóm og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, þriggja ára dóm.