Það sem af er árinu hefur sala á áfengi dregist saman í lítrum talið um 7,8% miðað við sama tímabil árið 2009.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar en þó er tekið fram að ekki sé raunhæft að bera saman sölu í apríl á milli ára þar sem páskarnir hafa mikil áhrif en í ár voru páskarnir í mars en voru í apríl í fyrra.

Sala hefur minnkað í  nær öllum flokkum áfengis en mismikið. Sala á hvítvíni og rauðvíni hefur minnkað um 3,5 – 3,9% á milli ára þar sem af er ári. Þá hefur sala á bjór minnkað um tæp 8%.

Það sem af er árinu er samdrátturinn hins vegar mest áberandi í sterkum og blönduðum drykkjum. Sala á sterkum drykkjum hefur minnkað um 24% á milli ára og sala á blönduðum drykkjum hefur minnkað um tæp 36%.