Bifreiðasala þýska bílaframleiðandans Volkswagen hefur aukist um 8% á fyrri hluta þessa árs, miðað við sama tíma og í fyrra. Þetta hefur Dow Jones fréttastofan eftir tveimur heimildarmönnum sem vel þekkja til stöðu mála.

Volkswagen hafði áður greint frá því að salan á fyrstu fimm mánuðum ársins hefði aukist um 7,6% og numið samtals 2,53 milljónum bíla. Eining félagsins í Bandaríkjunum tilkynnti hins vegar fyrr í þessum mánuði að salan þar hefði dregist saman um 1%.