Sala áfengis sumarmánuðina júní, júlí og ágúst er örlítið minni en sömu mánuði í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar en sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni er meir en sömu mánuði 2009 en sala á bjór og sterkum vínum er minni.

Vakin er sérstök athygli á því að sala á freyðivíni eykst talsvert á milli ára en sala sumarsins nær hins vegar ekki sölu sömu mánaða 2007 en þá seldust um 30 þús. lítrar af freyðivíni.

Fyrstu átta mánuði ársins nemur samdráttur í seldum lítrum 6% á milli ára. Minni samdráttur er í sölu á hvítvíni en rauðvíni en hlutfallslega hefur dregið meira úr sölu bjórs eða 6% á milli ára. Þá hefur verulega dregið úr sölu á blönduðum drykkjum eða um rúm 30% á milli ára. Loks hefur sala á ókrydduðu brennivíni og vodka dregist saman um rúm 20% á milli ára fyrstu átta mánuði ársins.

Sjá nánar á vef Vínbúðarinnar.