Útgerðarfélagið Brim hagnaðist um 12,3 milljónir evra, eða um 1,8 milljarða króna miðað við núverandi gengi krónunnar, á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður félagsins á fyrri helmingi ársins nam nærri 3,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri félagsins.

Sala Brim meira en tvöfaldaðist milli ára og nam 128,7 milljónum evra eða um 19,2 milljörðum króna. Framlegð útgerðarfélagsins jókst úr 9,8 milljónum evra í 21,3 milljónir evra milli ára.

„Viðsnúningur varð á rekstri uppsjávarsviðs í kjölfar loðnuvertíðar,“ segir í skýrslu stjórnar. Auk loðnunnar var helsta breytingin milli ára sögð góð sala afurða ásamt því að fiskvinnslan í Norðurgarði hafi gengið vel en loka þurfti henni í rúma tvo mánuði á fyrri helmingi síðasta árs. Í fjárfestakynningu félagsins segir að veiði á botnfiski hafi verið góð á fjórðungnum en aukning var í veiði ísfisktogara. Uppsjávarveiðar á kolmunna voru þó minni en á fyrra ári.

Eignir félagsins námu 762 milljónum evra í lok júní eða um 114 milljarðar króna. Eigið fé var um 51,6 milljarðar og eiginfjárhlutfall félagsins var því um 45,5%.

Laun og launatengd gjöld á fyrri helmingi ársins lækkuðu um 34% frá sama tíma í fyrra, í evrum talið, og námu 290 milljónum króna. Annar stjórnunarkostnaður lækkaði sömuleiðis um 2,7% og var 428 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins.

Í ágúst urðu breytingar á skipastól Brims er Höfrungur III AK-250 var seldur til Rússlands á 5 milljónir dala eða um 633 milljónir króna, en gert er ráð fyrir að skipið verði afhent nýjum eigendum í september. Brim hefur hins vegar fest kaup á á uppsjávarskipinu Iivid af Arctic Prime Fisheries ApS á 58 milljónir danskra króna, jafnvirði 1,2 milljörðum íslenskra króna, og mun það skip fá nafnið Svanur RE-45.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims:

„Ég er ánægður með uppgjörið og afkomuna á fyrri hluta ársins. Rekstur félagsins er stöðugur þrátt fyrir óróa á heimsmörkuðum. Engu að síður eru alltaf sveiflur í sjávarútvegi eins og dæmi frá í vetur sýna þegar leyfðar voru loðnuveiðar eftir nokkurra ára hlé en þær gengu vel og sala loðnuafurða sömuleiðis.

Vegna sveiflna og stöðugra breytinga í sjávarútvegi verða eigendur og stjórnendur að horfa til langs tíma. Í áratugi hefur það verið þaulhugsuð stefna Brims að kyrrsetja í félaginu stóran hluta hagnaðar á ári hverju til að styrkja og auka við eigið fé félagsins. Þannig hefur fyrirtækið á hverjum tíma getað fjárfest til frekari uppbyggingar, t.d. í öflugum skipum, mannauð, aflaheimildum, nýrri tækni og tækjabúnaði og nýsköpun til að takast á við breytta tíma.

Á þessu ári eru það nýlegar fjárfestingar í ísfisktogurum og hátæknivinnslu í Norðurgarði sem skila auknum verðmætum í botnfiski og á uppsjávarsviði félagsins skilaði öflugt sölustarf dótturfélags Brims í Japan góðum verðum fyrir loðnuafurðir á þessu ári en Brim fjárfesti í félaginu fyrir tveimur árum.

Brim birtir nú í fyrsta sinn umhverfisuppgjör fyrir fyrri hluta ársins en félagið hefur skuldbundið sig til að draga úr losun í samræmi við Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 2015. Í uppgjörinu kemur fram að okkur miðar á þeirri leið en enn er langt í land. Með reglulegu uppgjöri eykst agi sem er nauðsynlegur til að ná árangri í baráttunni gegn loftlagsvánni. Í árs- og samfélagsskýrslu félagsins birtist uppgjör fyrir ófjárhagslega þætti í starfi félagsins sem áhrif hafa á umhverfi og samfélag. Þar á meðal upplýsingar um eignarhald Brims í öðrum félögum og sést þar að félagið fjárfestir í fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi.

Efnahagur Brims er traustur í dag, eigið fé félagsins nemur 50,7 milljörðum íslenskra króna. Það gerir félaginu kleift að fjárfesta þegar tækifæri gefast og eiga möguleika á fjármögnum á hagstæðum kjörum. Til þess að Brim verði áfram burðarstoð í atvinnulífi landsmanna verður fyrirtækið að vera öflugt og eiga fjármagn til að fjárfesta.“