Teymi hf. er annað stærsta eignarhaldsfélag landsins á sviði fjarskipta og upplýsingatækni en félagið hefur hafið viðræður við kröfuhafa félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna eins og kom fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Innan samstæðunnar eru dótturfélögin Vodafone á Íslandi og í Færeyjum, Tal, Kögun, Skýrr, Eskill, Landsteinar Strengur, Hugur/Ax og EJS. Þessar eignir eru nú til sölu. Árni Pétur Jónsson er forstjóri Teymis.