Sala nýrra fólksbíla í júlí jókst um 16,9% miðað við júlí fyrra, en alls voru skráðir 1730 nýir fólksbílar nú en í júlí 2020 voru 1480 nýjir fólksbílar skráðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Sala til bílaleiga heldur áfram að aukast sé horft til síðastliðins árs og seldust 1095 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 723 á sama tíma í fyrra en það er aukning um 51,5 % miðað við júlí 2020. Það sem af er ári hafa verið skráðir 3386 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 1585 bíla í fyrra og er því aukning í sölu fólksbíla til ökutækjaleiga tæplega 114%.

Í heildina eftir fyrstu sjö mánuði ársins hefur salan aukist um 37% miðað við sama tímabil í fyrra. Í ár hafa selst 7770 nýir fólksbílar samanborið við 5673 nýja fólskbíla í fyrra.

Til einstaklinga seldust 499 nýjir fólksbílar í júlí saman borið við 524 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur í sölu til einstaklinga 4,8% milli ára í Júlí. Það sem af er ári hafa selst 3206 nýir fólksbílar til einstaklinga en í fyrra á sama tíma var búið að selja 2966 nýja fólksbíla sem þýðir aukningu í sölu til einstaklinga upp á 8,1% það sem af er ári.

Almenn fyrirtæki, önnur en bílaleigur, keyptu 119 nýja fólksbíla í júlí í ár miðað við að hafa keypt 184 bíla í júlí í fyrra. Það sem af er ári hafa selst 1097 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma voru seldir 1027 nýir fólksbílar og er því aukning milli ára 6,8%.

Nýorkubílar eru 65,5% allra seldra nýrra fólksbíla á árinu en hlutfall nýorkubíla heldur áfram að aukast jafnt og þétt en er vöruúrval stöðugt að aukast með fleiri valkostum.

Í júlí var Toyota mest selda tegundin með 360 selda fólksbíla, þar á eftir kemur Kia með 331 selda fólksbíla og þriðja mest selda tegundin í júlí var Hyundai með 193 fólksbíla skráða.