Sala General Motors jókst um 23% í janúar og er það umfram spár greiningaraðila sem spáðu 15% söluaukningu.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

GM seldi 178.896 bíla, jeppa og pallbíla í janúar.  Salan í janúar í fyrra var 146.825.  Árið 2010 seldi félagið 1.727 bíla.