Viðræður við Íbúðalánasjóð um sölu á hluta af íbúðalánum SPRON að verðmæti 20 milljarða króna eru á lokastigi.

Heildarútlán SPRON við níu mánaða uppgjör félagsins árið 2008 námu 206,5 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu SPRON til Kauphallarinar.

Þar kemur fram að lánin verða seld á bókfærðu verði og fær SPRON greitt 80% af andvirði lánanna strax en 20% þeirra greiðast síðar.

„Sala íbúðalánanna hefur engin áhrif á eiginfjárstöðu SPRON en markmiðið með sölunni er að renna traustari stoðum undir lausafjárstöðu félagsins,“ segir í tilkynningunni.

„Lánin sem um ræðir eru innlend íbúðalán og hefur sala þeirra til Íbúðalánasjóðs engin áhrif á lántakendur þar sem SPRON mun annast alla umsýslu þeirra eins og áður.“