Í ágúst var velta í húsgagnasölu 36% meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar, sem er haldið út af Háskólanum á Bifröst.

Síðastliðna sex mánuði hefur sala húsgagna verið um þriðjungi meiri en á sama tíma og í fyrra. Þó hafa viðskipti með húsgögn ekki náð sömu hæðum og fyrir hrun að mati Rannsóknarsetursins.

Þar kemur einnig fram að: „ Sala húsgagna var í ágúst síðastliðnum 66% meiri að magni til (á föstu verðlagi) en í ágúst 2010.  Hins vegar þegar húsgagnasala er borin saman við ágúst 2007 sést að salan þá var 29% meiri en hún var í ágúst síðastliðnum. Ef fram heldur sem horfir verður húsgagnasala orðin meiri eftir ár en hún var fyrir hrun.“

Talið er að aukin ferðamannastraumur hafi haft jákvæð óbein áhrif á sölu húsgagna, vegna þess að hótel og ferðaþjónustuaðilar hafi keypt þau í auknu magni.

Einnig kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar að: „Byggingavöruverslun blómstrar nú sem aldrei fyrr, og kemur sjálfsagt fæstum á óvart. Í síðasta mánuði var næstum 20% meiri velta en í sama mánuði í fyrra. Í þeim tölum er bæði sala vegna nýbygginga og endurnýjunar á húsnæði.

Meiri sala á raftækum, tölvum og snjallsímum

Heldur meiri sala var í raftækjum, tölvum og snjallsímum í ágúst síðastliðnum en 12 mánuðum áður. Í ágúst eru venjulega útsölur á raftækjum. Sú vörutegund sem mestar sveiflur urðu í, í þessum vöruflokki, voru tölvur. Líklega hefur upphaf skólaársins í ágúst, og endurnýjun á tölvum þess vegna, haft þar mest áhrif.

Litlar breytingar voru á veltu fata- og skóverslana í ágúst. Verðlag hefur þó lækkað töluvert í samanburði við ágúst í fyrra sem ræðst fyrst og fremst af afnámi 15% tolla á fatnað um síðustu áramót.

Verðlag hefur almennt lítið breyst í smásöluverslunum. Verð á dagvöru og áfengi hefur hækkað um 0,8% á síðustu tólf mánuðum, verð á fötum lækkaði á sama tímabili um 6,2% og verð á húsgögnum hækkaði um 2%.“