Sala á jólabjór jókst um 7,5% á milli ára. 616 þúsund lítrar voru seldir tímabilið 15. nóvember – 31. desember en  á sama tímabili árið á undan seldust 573 þúsund lítrar.

Alls voru seldir 18.653 þúsund lítrar af áfengi á árinu sem var að líða. Það er 0,6% aukning frá fyrra ári. Mest var selt af lagerbjór eða rúmlega 14 milljón lítrar.

Mikill samdráttur var í sölu á sígarettum á árinu eða 12,2%. Einnig var samdráttur í sölu á neftóbaki um 4% og vindlum um 10,2%. Hins vegar er aukning í sölu á reyktóbaki t.d. píputóbaki um 5,9%.