Sala á jólabjór er nú hafin í verslunum ÁTVR. Þetta kemur fram í frétt á vef Vínbúðarinnar. Viðskiptablaðið gerði stutta úttekt á hvaða tegundir sum af helstu brugghúsum Íslands buðu upp á, hana má sjá hér .

„Að þessu sinni verða um 50 tegundir af jólabjór og jólavörum í sölu þetta árið, en hér má sjá lista yfir þær vörur sem til eru núna,“ segir í frétt Vínbúðarinnar. Þar af verða í heildina 34 tegundir af jólabjór í boði á hillum ÁTVR, en það er talsverð fjölgun í úrvali miðað við fyrri ár.