Sala á Mercedes Benz bifreiðum jókst um 14% í október. Bílaframleiðandinn seldi 100.500 bíla í mánuðnum en 88.400 á sama tíma í fyrra. Mercedes Benz hefur selt 954.400 bíla það sem af er þessu ári.