Sala á nýjum bílum jókst um 8,9% í mars en nýskráðir fólksbílar í mánuðinum eru 537 á móti 493 í sama mánuði í fyrra. Það er aukning um 44 bíla. Samtals hafa verið skráðir 1574 fólksbílar þar sem af er árinu og er það 18,1% aukning frá fyrra ári.  Þar af hafa verið nýskráðir 438 bílaleigubílar.

„Bílasala heldur áfram að aukast og er aukningin aðallega í sölu til einstaklinga og fyrirtækja.  Eftirspurn eftir nýjum bílum er í hægum en jákvæðum bata og ekki vanþörf á þar sem bílafloti landsmanna er orðinn einn sá elsti í Evrópu.  Ef fram fer sem horfir munum við ná að yngja bílaflotann eitthvað á þessu ári með minna mengandi og öruggari bílum öllu til hagsbóta,“ segir Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.