Sala nýrra fólksbíla í júní dróst saman um 39,4% miðað við júní í fyrra, en alls voru skráðir 824 nýir fólksbílar nú en voru 1359 í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgrienasambandinu.

Þar með hefur sala nýrra bíla dregist saman um 42,5% á fyrri helmingi ársins borið saman við sama tímabil í fyrra, þar sem 4193 nýir fólksbílar hafa selst í ár en voru 7294 í fyrra.

„Ljóst er að mikill samdráttur er á milli ára sem rekja má til heimsfaraldurs COVID-19. Fyrst og fremst eru áhrifin á ferðaþjónustuna en mun færri bílaleigubílar hafa verið nýskráðir á fyrri helmingi ársins í ár miðað við sama tímabil síðasta árs. Hafa 873 nýir bílaleigubílar verið skráðir núna á fyrstu 6 mánuðum þessa árs en voru 3659 á sama tíma í fyrra, sem gerir 76,1% samdrátt á milli ára," segir í tilkynningunni.

„Aðra sögu er hinsvegar að segja af einstaklingum og almennum fyrirtækjum því til þeirra hafa selst 3285 nýir fólksbílar það sem af er ári og er það samdráttur upp á 8,2% miðað við sama tíma í fyrra. Hlutfall orkugjafa er að breytast töluvert milli ára og hefur selst mest af rafmagnsbílum eða 1069 það sem af er ári. Hlutfall nýorkubíla (tengiltvinn, rafmagns, hybrid og metan) er 57% af allri sölu nýrra fólksbíla á árinu samanborið við tæplega 23% í fyrra. Einnig hefur markaðurinn með notaða bíla haldið sér ágætlega á árinu en eftir að hafa gefið örlítið eftir í mars og apríl þá var maí mjög góður og á pari við maí í fyrra hvað varðar fjölda eigenda- og umráðamannaskipta."

Mest selda tegundin það sem af er ári er Toyota með 550 bíla (13,1% hlutdeild), en þar á eftir kemur Tesla með 465 bíla (11,1%) og svo Kia með 329 bíla (7,8%).