Sala á nýjum fólksbílum frá 1–30 nóvember sl. jókst um 92% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 793 talsins.

Þá voru þeir 413 í sama mánuði 2014 en það er aukning um 380 bíla. Þetta kemur fram í tilkynningu Bílgreinasambandsins.

44,4% aukning er í nýskráningum frá 1. janúar til og með 30. nóvember miðað við sama tímabil á fyrra ári. Samtals hafa verið nýskráðir 13.192 fólksbílar það sem af er ári.

Nýskráningar bíla það sem af er ári eru komnar langt umfram spár en í byrjun árs var gert ráð fyrir u.þ.b. 10.000 fólksbílum.