Stjórn Orkla ASA, móðurfélags Orkla Media, norska fjölmiðlafyrirtækisins sem Dagsbrún hefur lýst yfir áhuga á að kaupa, komst ekki að niðurstöðu um sölu á dótturfélaginu á fundi sínum í gær. Í yfirlýsingu sagði að farið yrði betur yfir málið síðar, en ekki væri hægt að gefa upp hverjir eða hve margir hefðu sýnt félaginu áhuga. Í frétt Berlingske Tidende segir að líklegasti kaupandinn sé breski auðjöfurinn David Montgomery og félag hans, Mecom.