Í dag er bóndadagur og fyrsti dagur í þorra. Af því tilefni hefst sala á þorrabjór í Vínbúðum. Sjö tegundir verða í boði, Einiberja Bock, Gæðingur, Kvasir nr. 22, Þorragull, Surtur, Þorrakaldi og Þorraþræll, eftir því sem fram kemur á vef Vínbúðanna. Sölu þorrabjórsins lýkur á konudaginn 23.febrúar.