Alheimsfaraldurinn hefur orðið til þess að Niceland Seafood hefur hraðað þeim áformum sínum að hefja sölu á frystum fiski á Bandaríkjamarkaði. Um 50% heildarsölunnar hefur verið í veitingahús í Bandaríkjunum en sá markaður hvarf með öllu þegar Covid-19 faraldurinn gaus upp í marsmánuði.
Allt frá stofnun fyrirtækisins 2018 hefur Niceland Seafood sérhæft sig í sölu á ferskum fiski frá Íslandi undir sínu eigin vörumerki með upprunamerkingum í verslanir og veitingahús í Bandaríkjunum og í netsölu. Staðan er gjörbreytt.
„Við erum einmitt þessa stundina að hefja markaðssókn með frosinn fisk og sala á honum hefst í Bandaríkjunum á næstu vikum. Þessi vara verður boðin samhliða ferskum fiski. Við höfðum alltaf uppi áform um að hefja sölu á frosnum fiski en Covid-19 hraðaði þeirri ákvörðunartöku. Undanfarið hefur vinnan legið í því að finna pakkningalausnir sem gera okkur kleift að stýra betur vörumerkinu,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Niceland Seafood.
Hún segir að eftir að faraldurinn kom upp í Bandaríkjunum hafi reynst erfitt að koma ferskum vörum Niceland Seafood lengra áleiðis en til Boston. Fram að því hafði fyrirtækið selt fisk í 93 verslanir vítt og breitt um Bandaríkin, þar af í 67 verslanir í Colorado fylki.
Bein viðbrögð
„Við seldum líka mikið af okkar vöru til veitingahúsa og matvælaþjónustufyrirtækja og sá markaður gufaði upp nánast á augabragði. En á móti kemur aukning í netsöluverslun og aukin sala í verslunum en það nær samt engan veginn að vega upp tímabundna lokun veitingahúsamarkaðsins. Það eru þess vegna bein viðbrögð okkar við faraldrinum að koma frystri og neytendapakkaðri vöru út til verslana í Bandaríkjunum.“
Frá veiðum að diski
Markhópur Niceland Seafood hefur verið öðru vísi samsettur en algengast er. Kaupendur vörunnar eru tilbúnir að greiða aukalega fyrir máltíð sem passar við þeirra lífsstíl og hugmyndafræði. Sömu aðferðum verður beitt nú þegar sala fer að hefjast á neytendapökkuðum frosnum vörum frá Niceland Seafood til Bandaríkjanna. Umbúðirnar bera greinilega með sér hvaðan varan kemur og á þeim eru QR-kóðar, eins og var á fersku vörunni, sem fyrirtækið hefur verið að þróa undanfarin tvö ár. Með því að lesa af QR-kóðanum á umbúðunum með snjallsíma opnast upplýsingasíða þar sem neytendur geta kynnt sér sögu vörunnar allt frá veiðum til vinnslu, flutnings og dreifingar. Þeir fá fullvissu um að varan sem þeir kaupa sé framleidd með sjálfbærum hætti og standist ströngustu kröfur í þeim efnum.
Heiða Kristín segir að reynsluna þá að markaðurinn hafi brugðist vel við QR-kóða merkingum á vörum Niceland. Það eitt og sér dugi þó ekki til í markaðssetningunni. Þar þurfi margt að koma saman og ekki síst umhverfisvænar lausnir á sem flestum sviðum.
„Rétt fyrir Covid vorum við komin í spennandi samstarf við sjávarréttarkeðju í Bandaríkjunum sem heitir Oceanair. Við vorum komin með QR-kóðann á matseðilinn og þetta lofaði góðu. En síðan var skellt í lás og veitingastaðir í landinu verið lokaðir meira eða minna frá því í mars.“