Uppfærðar áætlanir Vífilfells gera ráð fyrir að salan á Víking páskabjór verði um þriðjungi meiri en í fyrra. Allur páskabjórinn sem áætlað var að framleiða fyrir páskahátíðina er þegar kominn í verslanir, þremur vikum fyrir páska.

Sala á páskabjór hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Hún náði hámarki fyrir hrun en dalaði svo nokkuð áður hún óx síðan á ný eftir því sem leið frá hruni. Í ár verður framleiðslan áttfalt meiri en hún var árið 2009.