Arion banki hefur ákveðið að ganga til samninga við Friðbert Friðbertsson og Franz Jezorski um sölu á bifreiðaumboðinu Heklu. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð. Söluferlið er unnið í samstarfi við Volkswagen í Þýskalandi að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Arion banka.

„Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér þann 16. september síðastliðinn og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið, var bifreiðaumboðið Hekla auglýst til sölu. Tólf tilboð bárust bankanum og héldu fimm tilboðsgjafar áfram í söluferlinu. Í kjölfar þeirra viðræðna hefur verið ákveðið að ganga til formlegra samningaviðræðna við fyrrnefnda aðila um kaup þeirra á Heklu," segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir á fyrstu vikum næsta árs.