Félag í eigu Skúla Mogensen, Lífeyrissjóður Verslunarmanna, Joseph Lewis og Rowland fjölskyldan eru stærstu hluthafar MP banka eftir endurskipulagningu hans. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í MP banka í dag.

Fréttatilkynning vegna sölunnar:

Samningur um sölu á starfsemi MP banka á Íslandi og í Litháen var samþykktur á hluthafafundi bankans í dag með 99,7% atkvæða. Nýr eigendahópur tekur við allri innlendri starfsemi bankans og starfseminni í Litháen og verður hún rekin undir nafni MP banka. Eignir bankans í Úkraínu hafa verið aðskildar frá rekstrinum og verða áfram í eigu fyrrverandi hluthafa. Nýju eigendurnir leggja MP banka til 5,5 milljarða í nýju hlutafé og er eiginfjárhlutfall bankans vel umfram skilyrði Fjármálaeftirlitsins. Breytt eignarhald á MP banka hefur ekki í  för með sér breytingar fyrir viðskiptavini bankans. Aukin áhersla verður lögð á þjónustu við minni og meðalstór fyrirtæki.

Í nýjum hluthafahópi MP banka eru bæði innlendir og erlendir fagfjárfestar sem hafa trú á bankanum og telja mikla möguleika fyrir frjálsan og óháðan banka. Stærstu hluthafarnir eru Títan fjárfestingafélag (17,5%), Lífeyrissjóður verslunarmanna (9,8%), Joseph C. Lewis, eigandi m.a. Tavistock Group (9,6%), Rowland fjölskyldan sem á m.a. Banque Havilland í Lúxemborg (9,6%), Guðmundur Jónsson (9,1%), TM (5,4%), VÍS (4,5%) og Robert Raich, kanadískur fjárfestir og lögfræðingur (3,6%). Meðal minni hluthafa eru meðal annars Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins.

„Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna og teljum mikil tækifæri felast í því að efla og byggja upp eina sjálfstæða banka landsins,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri Títan fjárfestingafélags, sem leiðir nýjan hluthafahóp MP banka. „Við leggjum ríka áherslu á óháða stjórn bankans og öflugt innra eftirlit. Til dæmis er bankanum nú óheimilt með öllu að taka veð í eigin hlutabréfum samkvæmt nýjum samþykktum félagsins.“

Eigið fé verður 5,5 ma kr. og eiginfjárhlutfall 24%

Við endurskipulagningu MP banka var farin sú leið að skipta honum í tvennt. Innlend starfsemi og starfsemi í Litháen er færð í dótturfélagið nb.is - sparisjóður og fær það nafnið MP banki.  Eignir í Úkraínu verða áfram í eigu fyrrverandi hluthafa undir nafni EA fjárfestingarfélags . Náið samráð var haft við eftirlitsaðila um skiptinguna.

Nýir eigendur leggja MP banka til 5,5 milljarða króna í nýju hlutafé og verður eiginfjárhlutfall bankans (CAD) nú 24%, eða vel umfram skilyrði Fjármálaeftirlitsins. Nýtt hlutafé hefur þegar verið greitt inn í bankann í reiðufé. Engin lánafyrirgreiðsla var veitt til nýrra hluthafa frá bankanum. Virkum hluthöfum og fyrirtækjum þeirra er óheimilt með öllu að fá lán í bankanum.

Áfram áhersla á góða þjónustu og ánægða viðskiptavini

Hluthafar hafa ákveðið að meirihluti stjórnar sé skipaður óháðum fulltrúum. Stjórnina skipa Þorsteinn Pálsson  lögfræðingur, stjórnarformaður, Skúli Mogensen forstjóri Títan fjárfestingafélags varaformaður og meðstjórnendur eru Hanna Katrín Friðriksson, MBA og yfirmaður viðskiptaþróunar Icepharma, Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Mario Espinosa, framkvæmdastjóri Tavistock Group.

„Ég veit af eigin reynslu að viðskiptavinir MP banka eru mjög ánægðir með þá þjónustu sem bankinn veitir almennum viðskiptamönnum og við ætlum okkur að sjálfsögðu að byggja áfram á því góða orðspori, segir Þorsteinn Pálsson stjórnarformaður. „Ég fagna því að fá tækifæri til að vinna með nýjum hluthöfum bankans í að byggja upp sjálfstæðan og óháðan banka og ég var sérstaklega ánægður með að finna strax frá upphafi að þeir leggðu áherslu á að taka upp nýja siði.“

„Minni og meðalstór fyrirtæki eru lykillinn að endurreisn efnahagslífsins og þau þurfa banka sem er með þeim í liði. Það höfum við gert hingað til og munum nú með auknum fjárhagslegum styrk geta sinnt fleiri fyrirtækjum,“ segir Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP banka.

Hluthafalisti:

MP banki hluthafalisti
MP banki hluthafalisti
© None (None)

Stækka má myndina með því að smella á hana.