Íslandsbanki hefur í dag undirritað kaupsamning um sölu á 63,5% hlut Íslandsbanka í Borgun hf. til Salt Pay Co Ltd. Samhliða sölu Íslandsbanka kaupir Salt Pay Co einnig eignarhlut Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf. og mun í kjölfar kaupanna fara með 95,9% hlutafjár í Borgun.

Eignarhaldsfélagið keypti 24,96% hlut í félaginu í nóvember 2014 af Landsbankanum, á sama tíma og félagið BPS keypti um 5%, en síðar stefndi Landsbankinn báðum félögunum auk forstjóra Borgunar á sínum tíma því bankinn taldi sig hafa misst af fjármunum við sölu á hlut sínum fyrir 2,2 milljarða króna , vegna sölu Borgunar á hlut í Visa Europe sem skilaði félaginu 9 milljarða .

Kostnaðarhlutfall Íslandsbanka lækkar

Kaupverðið nú er trúnaðarmál en salan er sögð í fréttatilkynningu hafa óveruleg áhrif á rekstur bankans. Leiðrétt fyrir rekstri Borgunar hefðu þóknanatekjur samstæðu Íslandsbanka fyrir árið 2019 dregist saman um 13%, rekstrargjöld lækkað um 13% og kostnaðarhlutfall lækkað um fjögur prósentustig.

Salan hefur jákvæð áhrif á eiginfjárhlutföll bankans og lausafjárhlutföll lækka lítillega, en eru þó enn vel yfir markmiðum bankans og kröfum eftirlitsaðila. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veiti samþykki fyrir virkum eignarhlut kaupanda.

Formlegt söluferli á hlut bankans í Borgun hófst í upphafi árs 2019 í umsjón svissneska ráðgjafarfyrirtækisins Corestar Partners og fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka.

Gáfu út fyrsta kreditkortið á Íslandi

Borgun hf. var stofnað árið 1980 og gaf út fyrsta kreditkortið á Íslandi. Stöðugildi hjá fyrirtækinu eru nú ríflega 130 og skiptist starfsemin í þrennt. Í fyrsta lagi kortaútgáfa en fyrirtækið gefur út kreditkort fyrir Íslandsbanka og Aur.

Í öðru lagi í færsluhirðingu en starfsemin fer einkum fram í sex löndum; Íslandi, Bretlandi, Ungverjalandi, Tékklandi, Slóvakíu og Króatíu. Og í þriðja lagi í útlán, en þau fara m.a. fram með vöru- og þjónustukaupalánum í gegnum fjölda seljenda.

Alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í 14 löndum kaupir

Salt Pay er alþjóðlegt greiðslumiðlunarfyrirtæki með starfsemi í fjórtán löndum. Fyrirtækið sérhæfir sig í vörum og þjónustu sem tengjast vildarþjónustu og CRM lausnum. Núverandi starfsemi Salt Pay styður því vel við starfsemi Borgunar.

Salt var stofnað af frumkvöðlum sem eru á bak við nokkur af helstu greiðslumiðlunarkerfi heims. Hugmyndafræði fyrirtækisins er að einfalda líf viðskiptavina með betri þjónustu.

Íslandsbanki er með heildareignir að fjárhæð 1.199 milljarðar króna, eiginfjárhlutfall sem nam 22,4% og markaðshlutdeild á bilinu 25-40%  á innanlandsmarkaði í árslok 2019. Lánshæfismat Íslandsbanka er BBB+/A-2 frá S&P Global Ratings.

Hér má lesa frekari fréttir um málefni Borgunar: