Umferðin fyrstu sex mánuði ársins á Hringveginum (16 valdir talningarstaðir) er nákvæmlega sú sama og árið 2007.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en umferðin í ár er þannig aðeins meiri en í fyrra. Fram til ársins í fyrra hafði orðið stöðug aukning umferðar á þessum völdu talningarstöðum á Hringveginum.

Umferðin eykst allstaðar út á landi en dregst lítillega saman á Hringveginum við Höfuðborgarsvæðið. Samdráttur í atvinnuumferð á Geithálsi og við Úlfarsfell gæti verið skýring á þessu.

Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar.