Auglýsingamarkaðurinn á Íslandi hefur verið að velta nálægt 10 milljörðum á ári undanfarin ár, en fór þó í 10.357 milljónir króna árið 2007, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Á milli áranna 2007 til 2008 dróst veltan aftur á móti saman um 5% og fór í 9.847 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum úr auglýsingageiranum má gera ráð fyrir að samdrátturinn hafi verið ríflega 30% milli áranna 2008 og 2009. Það þýðir að veltan á auglýsingamarkaðnum hefur hrapað niður í tæpa 7 milljarða króna á síðasta ári, sem er ekki fjarri því sem veltan var á árinu 2004.
Þetta segir þó ekki alla söguna því engin skilgreining er til hjá Hagstofu á stærð netmiðlanna á auglýsingamarkaði og ekki heldur dreifirita, veltiskilta, auglýsinga á strætó og ýmislegt fleira. Telja kunnugir ekki fjarri lagi að þessir miðlar velti um 10 til 15% til viðbótar fyrrnefndum upphæðum.
Prentmiðlar tapa mestu
Sundurliðun Hagstofu fyrir árið 2009 á dreifingu auglýsingatekna á milli mismunandi miðla liggja ekki enn fyrir. Samkvæmt heimildum af auglýsingamarkaðnum er þó talið að af áætluðum 30-35% heildarsamdrætti auglýsinga á síðasta ári megi rekja stærstan hluta til samdráttar auglýsinga í dagblöðum. Þeim fækkaði úr 6,3 milljónum dálksentímetra 2008 í 3,9 milljónir dálksentímetra 2009 samkvæmt samantekt Auglýsingamiðlunar. Þá er bent á að nýjar fjölmiðlamælingar hafi haft þau áhrif að auglýsingafé fer hlutfallslega meira nú til ljósvakamiðlanna en áður, á kostnað dagblaða. Vísbendingar um þessa þróun voru reyndar komnar fram fyrir bankahrun skv. upplýsingum frá Auglýsingamiðlun.
____________________________________
Nánar er fjallað um þróun auglýsingamarkaðarins í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.