Sala hjá Dominos á Íslandi dróst saman um 2,5% í krónum talið en nærri 6% ef horft er fram hjá nýjum útibúum. Á sama tíma jókst salan hjá bresku Domino´s pizzakeðjunni, sem eiga nú starfsemina hér á landi, í heild, þó samdráttur væri einnig á öðrum stöðum keðjunnar utan Bretlands.
Í viðskiptayfirliti sem félagið hefur sent frá sér kemur fram að sala í íslenskri mynt hafi dregist saman um 2,5% á fjórða ársfjórðungi, meðan salan hafi dregist saman um 5,9% ef horft er til samanburðarhæfs fjölda staða. Ástæðan er sögð veikar markaðsaðstæður hér á landi.
Hins vegar hafi sala keðjunnar í heild aukist um 3,7% heilt yfir, í 352 milljón pund, eða sem samsvarar 57,7 milljörðum íslenskra króna á ársfjórðungnum miðað við sama tíma ári fyrr. Í heildina hefur samdráttur keðjunnar utan Bretlands, en hún er með starfsemi í Sviss, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, numið 5% samanburðarhæft, en 1,4% í gjaldmiðlum hvers lands fyrir sig.
Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í október síðastliðnum hefur keðjan hug á að selja rekstur sinn bæði hér á landi og á hinum Norðurlöndunum, en félagið hafði keypt síðustu hlutina í félaginu af Birgi Erni Birgissyni og Steinari Braga Sigurðssyni, ekki löngu áður en sagt var frá því í ágúst.
Þá kom jafnframt fram í fréttum að eigið fé Eyju, fjárfestingarfélags Birgis Þórs Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, sem selt höfðu helming í Domino´s á Íslandi til breska félagsins, hafi numið þremur milljörðum króna.
Nokkrum mánuðum fyrr, eða í mars kom fram að Íslendingar væru methafar í Domino´s áti , en þá um sumarið kom í ljós að hagnaður af starfseminni hér á landi nam 456 milljónum króna á árinu 2018.
Domino´s keðjan opnaði 12 nýja staði á árinu í Bretlandi á ársfjórðungnum, en engann þess utan. Vöxtur var í sölu í Sviss, eða um 1,2% miðað við gjaldmiðilinn, en magnið dróst saman um 8,3%.
Í Noregi, sem bætt hafði við sig tveim stöðum yfir árið, þar sem félagið rekur 56 staði (9 af þeim undir vörumerkinu Dolly Dimple´s), dróst sala í norskum krónum saman um 10,% í norskum krónum, þar af 5,6% á Domino´s stöðunum sjálfum. Magnsalan dróst hins vegar saman um 18,4%.
Hér má sjá frekari fréttir um Domino´s og skyld félög:
- 23. október 2019 - Þriggja milljarða eigið fé
- 17. október 2019 - Hyggjast selja Domino's á Íslandi
- 6. ágúst 2019 - Selja restina í Domino‘s
- 14. júlí 2019 - Seldu pitsur fyrir 5,8 milljarða
- 12. mars 2019 - Íslendingar methafar í Domino‘s áti
- 5. mars 2019 - Domino´s Pizza gjaldþrota í Danmörku
- 16. janúar 2019 - Dominos appið skuli vera aðgengilegt
- 8. desember 2018 - Velta veitingafyrirtækjanna eykst
- 21. október 2018 - Eyja hagnast um 776 milljónir