Það dróst úr hagnaði lyfjarisans GlaxoSmithKline á fyrsta ársfjórðungi ársins. Veikri stöðu Bandaríkjadals og aukinni samkeppni á samheitalyfjamarkaði í Bandaríkjunum var helst um að kenna. Hagnaður fyrir skatta dróst samanum eitt prósent á tímabilinu miðað við sama tímabil í fyrra og salan minnkaði einnig um fjögur prósent.