Rafbílaframleiðandinn Tesla hyggst loka um tylft sólarsellustarfsstöðva og fækka starfsfólki um allt að 9% að því er Reuters greinir frá . Tesla keypti fyrirtækið SolarCity fyrir tveimur árum á 2,6 milljarða dollara í nokkuð umdeildum kaupum. Heimildir Tesla herma að slíta eigi samstarfssamning við Home Depot, sem skili um helmingi tekna Tesla af sólarsellum.

Kaup Tesla á Solar City fóru fyrir brjóstið á fjölda hluthafa í Tesla. Musk var stjórnarformaður SolarCity, sem stofnað var af tveimur frændum Musk. Margir fjárfestar töldu Musk vera að nota Tesla til að bjarga SolarCity, sem skorti sárlega lausafé á þeim tíma.

Gengið hefur hratt á lausafé Tesla að undanförnu sem reynir því að draga úr kostnaði en brösulega hefur gengið að ná framleiðslumarkmiði um 5.000 Model 3 bifreiðar á viku.