Samkvæmt yfirliti frá Landssamtökum sláturleyfishafa var 13,5% minni nautgripakjötssala í maí 2004 miðað við sama mánuð 2003. Sömu sögu má segja um sölu á 12 mánaða tímabili, frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 hefur nautgripakjötssala dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið áður.

Þetta er nokkur breyting því frá því í september í fyrra hefur söluaukning orðið á nautakjöti í hverjum einasta mánuði, ef janúar 2004 er undanskilinn.