Vöruinnflutningur virðist hafa dregist saman um þrjá milljarða krónaí október miðað við september. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu nam vöruinnflutningur í október 26,8 milljarðar.

Í vefriti fjármálaráðuneytisins kemur fram að tólf mánaða breyting á innflutningi, miðað við þriggja mánaða staðvirt meðaltal, sýni því lækkun innflutnings upp á 2,5%. Ef innflutningstölur eru skoðaðar nánar sést að minni innflutning milli mánaða má að nær öllu leyti rekja til minni eldsneytisinnflutnings en sá liður er afar sveiflukenndur.

Innflutningur á matvælum eykst nokkuð. Innflutningur á hrá-, rekstrar- og fjárfestingarvörum eykst líka en er þó langt frá þeim hæðum sem hann náði yfir sumarmánuðina. Innflutningur bifreiða er á svipuðu róli og verið hefur en innflutningur á flutningstækjum til atvinnurekstrar heldur áfram að dragast saman. Innflutningur á varanlegum neysluvörum minnkar nokkuð milli mánaða.