Verulegur samdráttur var á milli ára í nóvember í nýjum íbúðalánum innlánsstofnana, eða 77%. Samdráttur á milli ára hefur verið svipaður frá miðju ári, segir greiningardeild Landsbankans.

Ný útlán banka náðu hámarki skömmu eftir að þau hófust haustið 2004 og fóru hæst í rúma 34 milljarða króna í október það ár.

Ný íbúðalán banka og sparisjóða námu 3,8 milljörðum króna í nóvember og jukust óverulega frá fyrri mánuði. Fjöldi nýrra útlána var 374 í nóvember, en var 388 í október. Upphæð og fjöldi nýrra útlána innlánsstofnana hefur lítið breyst frá því í sumar og virðist hafa náð jafnvægi, að minnsta kosti tímabundið, segir greiningardeildin.

Í nóvember drógust ný útlán Íbúðalánasjóðs saman um fimmtung frá sama mánuði í fyrra og námu 4,7 milljörðum króna eins og fram kom í Vegvísi. Samdrátturinn er því mun meiri hjá bönkunum og nýju útlánin lægri en hjá Íbúðalánasjóði.