Áætlað er að landsframleiðsla á fyrsta fjórðungi ársins hafi dregist saman um 1,7% að raungildi borið saman við sama tímabil fyrra árs. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, jókst um 1,7% að raungildi, einkaneysla um 0,8%, samneysla um 2,9% en áætlað er að fjármunamyndun hafi dregist saman um 2,9%.

Á fyrsta ársfjórðungi 2021 mældist samdráttur í flestum undirliðum utanríkisviðskipta en áætlað er að útflutningur hafi dregist saman um 20% að raungildi á sama tíma og innflutningur dróst saman um 11,3%. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar í heild er því neikvætt.

Samdráttur í útfluttri þjónustu mældist 52% á tímabilinu en vöxtur í vöruútflutningi mældist 4,6%. Samdráttur í vöruinnflutningi mældist 1,5% en 30% samdráttur mældist í þjónustuinnflutningi. Vöruviðskiptajöfnuður var áætlaður neikvæður um 21,9 milljarða króna. Þjónustujöfnuður var neikvæður um 10,9 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 en það er í fyrsta skipti síðan árið 2007 sem þjónustujöfnuður mælist neikvæður á ársfjórðungsgrunni.

Áætlað er að fjármunamyndun atvinnuveganna hafi dregist saman um 4,9% að raungildi á fyrsta ársfjórðungi borið saman við sama tímabil fyrra árs. Að frádreginni fjárfestingu í skipum, flugvélum og stóriðju er áætlað að fjármunamyndun atvinnuveganna hafi staðið í stað að raungildi á fyrsta ársfjórðungi borið saman við sama tímabil fyrra árs. Samdráttur í fjármunamyndun í íbúðarhúsnæði mældist 8,8% en áætlað er að fjármunamyndun hins opinbera hafi aukist um 18,7% að raungildi á tímabilinu.