Sameiginleg auglýsingaherferð QuizUp og Google hlýtur Webby-verðlaunin í ár í flokknum auglýsingar og miðlun. Herferð fyrirtækjanna fékk svokölluð People’s Choice verðlaun þar sem almenningur velur vinningshafann, en einnig eru veitt verðlaun sem valin eru af dómnefnd.

Verðlaunaverkefnið snerist m.a. um að nota loftmyndir úr Google Maps landakortakerfinu sem spurningar í QuizUp leiknum. Það voru þeir Viggó Jónsson og Ari Tómasson sem önnuðust verkefnið fyrir hönd Plain Vanilla í samvinnu við auglýsingastofuna Jónsson & Lemacks.

Verðlaunin eru veitt fyrir bestu og frumlegustu notkun á myndskeiðum, hljóði og hreyfimyndum fyrir farsíma og spjaldtölvur til að koma vörumerki, vöru eða almennum skilaboðum á framfæri.

„Það er ánægjulegt að sjá að samstarfsverkefni okkar við stórfyrirtæki á borð við Google fái þessa miklu athygli. Við höfum lagt mikla áherslu á að koma leiknum á framfæri í samstarfi við ýmist stórfyrirtæki vestanhafs og var þetta verkefni liður í því. Þessi verðlaun eru mjög mikils metin í okkar geira og gaman að QuizUp sé þarna í félagskap með mörgum öðrum frábærum verkefnum og fyrirtækjum,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla.

Verðlaunaafhendingin sjálf verður við hátíðlega athöfn í beinni útsendingu frá New York þann 19. maí næstkomandi. QuizUp hefur áður unnið Webby verðlaun, en á síðasta ári hlaut leikurinn verðlaun sem besti fjölspilunarleikurinn. Þá hlaut fyrirtækið verðlaun fyrir að skara fram úr á sínu sviði.