Innovit og Klak nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins hafa sameinast í eitt félag undir nafninu Klak Innovit. Kristján Freyr Kristjánsson, sem verður framkvæmdastjóri sameinaðs félagsins, segir í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is , að forsvarsmenn fyrirtækjanna hafi fundið fyrir því þegar þau unnu saman að Startup Reykjavík í fyrrasumar að þau eru sterk saman.

Unnið hefur verið að sameiningunni um nokkurt skeið, eins og vb.is greindi frá í mars síðastliðnum.

Eyþór Ívar Jónsson, sem var framkvæmdastjóri Klaks, hætti í fyrravetur.