Fagfjárfestasjóðurinn Auður I, sem er í vörslu Auðar Capital, og fjárfestirinn Kjartan Örn Ólafsson hafa gert tilboð í 10% eignarhlut í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf. sem á og rekur Vodafone á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Auði I. Þar segir að stjórn Eignarhaldsfélagsins Fjarskipta hf. hefur samþykkt kauptilboðið.

Kaupendurnir greiða fyrir eignarhlutinn með eign sinni í fjarskiptafélaginu Tali, sem er að fullu í þeirra eigu. Stefnt er að því að sameina félögin í kjölfarið. Tilboðið er með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakannana.

„Sameinað fyrirtæki verður vel í stakk búið til að koma til móts við kröfur neytenda um hagkvæma og góða fjarskiptaþjónustu.  Markmið Auðar I er að taka þátt í að byggja upp öflugt  fjarskiptafélag sem mögulegt er að skrá á hlutabréfamarkað í framtíðinni," segir í tilkynningu.