Leigufélögin Ásabyggð á Ásbrú og Heimavellir leigufélag hafa sameinast. Sameinað félag mun bera merki Heimavalla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Félagið stefnir að skráningu á hlutabréfamarkað í lok næsta árs. Hið nýja sameinaða félag verður stærsta leigufélag landsins á almennum markaði. Sameinað félag verður alls mepð ríflega 2.000 íbúðir.

„Ásabyggð á 716 leiguíbúðir á Ásbrú. Íbúðirnar hafa verið leigðar námsmönnum hjá Keili auk þess að vera leigðar á almennum markaði. Rekstur Ásabyggðar hófst fyrir liðlega 10 árum í tengslum við þróun og mótun framtíðarbyggðar gamla varnarliðssvæðisins undir forystu fasteignaþróunarfélagsins Klasa. Uppbyggingin á svæðinu hefur gengið vel og hefur nálægðin við flugvöllinn í Keflavík, sem er einn allra stærsti vinnustaður landsins, skapað mörg atvinnutækifæri fyrir íbúa svæðisins.

Heimavellir leigufélag var stofnað árið 2014 með samruna þriggja starfandi leigufélaga. Markmiðið var að byggja upp öflugt leigufélag að norrænni fyrirmynd sem gæti boðið einstaklingum og fjölskyldum upp á örugga langtímaleigu. Uppbygging félagsins hefur fyrst og fremst falist í sameiningum og yfirtökum starfandi leigufélaga. Í dag eiga og reka Heimavellir ríflega 960 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og í völdum þéttbýliskjörnum úti á landi. Þá hefur félagið gengið frá kaupum á um 300 nýjum leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem fara í útleigu á næstu mánuðum eins og tilkynnt var nýlega,“ segir í tilkynningunni.

Að banki Heimvalla stendur breiður hópur 59 hluthafa, þar á meðal eru fjárfestingarfélög, lífeyrissjóðir, tryggingarfélög og einstaklingar. Samanlögð heildarvelta Heimvalla á fyrri helmingi árs var um 960 milljónir króna. Sameinað félag mun eiga og reka yfir tvö þúsund leiguíbúðir á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, í Borgarnesi, á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn, Grindavík og Reykjanesbæ. Starfsmenn sameinaðs félags verða 16 talsins í 14,5 stöðugildum.