Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað kaup Árvakurs hf. og 365 miðla hf. á Póstmiðstöðinni ehf. móðurfélags Póstdreifingar, með skilyrðum. Þannig skuldbinda aðilar sig til aðgerða til þess að bregðast við þeirri röskun á samkeppni sem samruninn myndi annars leiða til. Árvakur eignast 51% í félaginu en 365 miðlar eignast 49%.

Kaupendur eru útgefendur stærstu dagblaða landsins, en Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og Torg ehf., dótturfélag 365 miðla, er útgáfufélag Fréttablaðsins. Póstmiðstöðin er félag sem starfar á sviði dreifingar, m.a. dagblaða og fjölpósts. Póstmiðstöðin er dreifingaraðili Fréttablaðsins og annarra miðla.

Landsprent ehf. er dótturfélag Árvakurs og hefur m.a. sinnt dreifingu Morgunblaðsins og annarra miðla, þar með talið Viðskiptablaðsins sem er að öðru leiti ótengt félag. Með samrunanum hyggjast samrunaaðilar sameina dreifikerfi sín fyrir dagblöð, tímarit og fjölpóst undir fyrirtækinu Póstmiðstöðinni sem þeir hyggjast reka sem dótturfélag.

Félagið keypt af 365 árið 2014

Í ársbyrjun 2014 var sagt frá því að félagið Traðarsteinn í eigu Þorsteins Márs Baldvinssonar forstjóra Samskipa, Helgu S. Guðmundsdóttur og sonar Malcolm Walker, eiganda Iceland keðjunnar, væru í viðræðum um að kaupa Póstmiðstöðina af 365 miðlum .

Það virðist þó hafa breyst því í apríl var sagt að kaupandinn væri félagið Strahan II , en það væri í eigu Einars Arnar Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, Höllu Sigrúnar Hjartardóttur, stjórnarformanns Fjármálaeftirlitsins, og Kára Þórs Guðjónssonar. Þó er sagt að félag í eigu fyrrnefnds Malcolms og meðfjárfestis hans sé einnig eigendur Póstmiðstöðvarinnar.

Seljendur Póstiðstöðvarinnar nú eru skv. Morgunblaðinu fyrrnefnt félag Strahan II, auk félagsins Fiskisund ehf. og Hannesar Hannessonar, en hann er framkvæmdastjóri Póstdreifingar.

Aukin hagræðing metin á móti fjölræði í fjölmiðlun

Samkeppniseftirlitið rannsakaði samrunann á grundvelli samrunareglna bæði samkeppnislaga og fjölmiðlalaga en samrunareglum síðarnefndu laganna er ætlað að vernda fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlun.

Rannsókn samrunans leiddi í ljós að samruninn leiðir til mögulegrar hagræðingar í dreifingu sem mikilvæg kann að vera fyrir markaðinn fyrir útgáfu dagblaða, m.a vegna kostnaðar við blaðadreifingu.

Á hinn bóginn leiddi rannsóknin í ljós ákveðna hættu á því að samrunaaðilar gætu misbeitt stöðu sinni gagnvart keppinautum, t.a.m. með því að hefta aðgang þeirra að dreifikerfi Póstmiðstöðvarinnar og mismuna þeim í verðlagningu og gæðum þjónustunnar.

Meginefni sáttar Samkeppniseftirlitsins við aðila málsins er eftirfarandi:

  1. Aðgangur og jafnræði: Póstmiðstöðinni verður óheimilt að útiloka aðila sem eru ótengdir samrunaaðilum frá viðskiptum vegna dreifingar á blöðum og prentefni. Skal Póstmiðstöðin verða við beiðni aðila um þjónustu nema málefnalegar ástæður mæli gegn því. Póstmiðstöðin skal jafnframt gæta jafnræðis í verðlagningu og gæðum þjónustunnar gagnvart viðskiptavinum sínum.
  2. Almenn verðskrá: Póstmiðstöðin skal setja sér almenna verðskrá vegna dreifingar á blöðum og prentefni. Verðskráin skal gilda í viðskiptum Póstmiðstöðvarinnar við viðskiptamenn, þ. á m. Árvakur og 365 miðla.
  3. Aukin eftirspurn: Í fjórðu grein sáttarinnar segir að Póstmiðstöðin skuli leitast við að verða við ósk nýs aðila um þjónustu jafnvel þó viðskiptin kalli á verulegar breytingar, m.a. fjárfestingar, breytingar á núverandi dreifikerfi eða verulega aukningu starfsmanna.
  4. Bann við samtvinnun þjónustu: Póstmiðstöðinni og eigendum hennar er óheimilt að gera það að skilyrði að viðskiptamenn Póstmiðstöðvarinnar kaupi jafnframt aðra þjónustu frá eigendum, s.s. prentþjónustu.
  5. Sjálfstæði stjórnenda og vernd trúnaðarupplýsinga: Framkvæmdastjóri og lykilstarfsmenn Póstmiðstöðvarinnar skulu vera sjálfstæðir í störfum sínum gagnvart Árvakri og 365 miðlum.

Jafnframt er í sáttinni kveðið á um aðgerðir til að vernda viðkvæmar viðskiptaupplýsingar viðskiptamanna Póstmiðstöðvarinnar.

Hér má sjá frekari fréttir um blaðburð: