Stjórnir MP banka hf. og Virðingar hf. hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að halda ekki áfram viðræðum um sameiningu félaganna, að því er segir í tilkynningu. Tilkynnt var um formlegar viðræður þann 9. september síðastliðinn.

Í tilkynningunni sem send var til fjölmiðla í dag segir að aðilar telji að viðræðurnar hafi verið áhugaverðar og að miklir möguleikar geti falist í sameiningu félaganna. Þær hafi þó leitt í ljós að áherslur og hugmyndir stjórna félaganna voru ekki að öllu leyti þær sömu.