Íslandspóstur fékk ekki samþykki samkeppnisyfirvalda fyrir sameiningu dótturfyrirtækis síns, ePósts, við móðurfélagið, þrátt fyrir að ákvæði sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið frá því í febrúar 2017 kveði á um að félagið megi ekki sameina dótturfélag móðurfélaginu án slíks samþykkis.

Fréttablaðið sagði frá þessu nú í morgun, auk þess sem Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sendi frá sér tilkynningu vegna fréttarinnar og málsins.

Í október síðastliðnum kvartaði FA til eftirlitsnefndar um ofangreinda sátt, vegna þess að ekki höfðu verið reiknaðir markaðsvextir á lán Íslandspósts til dótturfélagsins, eins og sáttin kveður á um. Íslandspóstur sagði skýringuna þá að ákveðið hefði verið að sameina dótturfélagið móðurfélaginu, en slíkt er sem áður segir óheimilt án fyrirliggjandi samþykkis Samkeppniseftirlitsins.

Þann 13. desember síðastliðinn var ePóstur svo afskráður úr fyrirtækjaskrá, en Samkeppniseftirlitið staðfesti í samtali við fréttablaðið í morgun að „ekki liggi fyrir hjá stofnuninni afstaða til þess hvort aðgerðin sé brot á sáttinni,“ en málið sé í skoðun.

Ólafur Stephensen segir málið með miklum ólíkindum. „Íslandspóstur telur sáttina við Samkeppniseftirlitið augljóslega lítils virði. Það vekur furðu okkar hversu svifaseint eftirlitið með fyrirtækinu er af hálfu samkeppnisyfirvalda. Augljós brot liggja í augum uppi - það þarf ekki annað en að kunna að lesa til að átta sig á því. Forsvarsmenn Íslandspósts verða jafnframt uppvísir að ósannindum um samskipti sín við samkeppnisyfirvöld en viðbrögð eftirlitsnefndarinnar og Samkeppniseftirlitsins láta á sér standa. Eftirlitsnefndin var 18 mánuði að svara annarri kæru FA vegna sáttarinnar, sem sneri að sendibílaþjónustu Póstsins. Það væri fáránlegt ef það tæki samkeppnisyfirvöld jafnlangan tíma að bregðast við í þessu máli.“

Tilkynning FA í heild:

Vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í morgun vill Félag atvinnurekenda koma eftirfarandi á framfæri:

Íslandspóstur (ÍSP) heldur áfram að þverbrjóta sátt sína við samkeppnisyfirvöld með grófum hætti. Hinn 13. desember sl. var dótturfyrirtæki ÍSP, ePóstur, afskráð úr fyrirtækjaskrá og sameinað móðurfélaginu. Í 9. grein sáttar ÍSP og Samkeppniseftirlitsins frá því í febrúar 2017 kemur skýrt fram að ekki megi sameina nokkur dótturfélög Íslandspósti, þar á meðal ePóst, án samþykkis Samkeppniseftirlitsins og álits sérstakrar eftirlitsnefndar, sem framfylgir því að sáttin sé haldin.

Beðið um afstöðu eftir kæru frá FA
Félag atvinnurekenda kærði Íslandspóst til eftirlitsnefndarinnar í október síðastliðnum vegna þess að ekki höfðu verið reiknaðir markaðsvextir á lán félagsins til ePósts, eins og sáttin kveður þó skýrt á um. Í svörum ÍSP til eftirlitsnefndarinnar, sem FA greindi frá 5. desember síðastliðinn, kom fram að ekki hefði verið farið að ákvæðum sáttarinnar um vaxtaútreikninginn af því að ákveðið hefði verið að sameina ePóst móðurfélaginu (annaðhvort árið 2017 eða í júní 2018, stjórnendum Íslandspósts ber ekki saman um það). Slíkt er hins vegar óheimilt án þess að afla fyrst álits eftirlitsnefndarinnar og svo samþykkis Samkeppniseftirlitsins. Beiðni um afstöðu eftirlitsnefndarinnar var hins vegar ekki send fyrr en þremur dögum eftir að FA kærði Póstinn í október.

Afstaða samkeppnisyfirvalda liggur ekki fyrir
FA fékk staðfest frá eftirlitsnefndinni 4. desember síðastliðinn að afstaða hennar til beiðni ÍSP um sameiningu við ePóst lægi ekki fyrir. Eftir að í ljós kom að ePóstur var afskráður úr fyrirtækjaskrá hinn 13. desember sendi félagið eftirlitsnefndinni enn kvörtun og spurði hvort afstaða nefndarinnar eða samþykki Samkeppniseftirlitsins hafi legið fyrir við sameiningu félaganna. Samkeppniseftirlitinu hafa jafnframt verið sendar fyrirspurnir þess efnis. Hvorki nefndin né Samkeppniseftirlitið hefur svarað, en í Fréttablaðinu í morgun staðfestir Samkeppniseftirlitið að „ekki liggi fyrir hjá stofnuninni afstaða til þess hvort aðgerðin sé brot á sáttinni.“ Málið sé í skoðun.

Svifaseint eftirlit
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir mál þetta með miklum ólíkindum. „Íslandspóstur telur sáttina við Samkeppniseftirlitið augljóslega lítils virði. Það vekur furðu okkar hversu svifaseint eftirlitið með fyrirtækinu er af hálfu samkeppnisyfirvalda. Augljós brot liggja í augum uppi - það þarf ekki annað en að kunna að lesa til að átta sig á því. Forsvarsmenn Íslandspósts verða jafnframt uppvísir að ósannindum um samskipti sín við samkeppnisyfirvöld en viðbrögð eftirlitsnefndarinnar og Samkeppniseftirlitsins láta á sér standa. Eftirlitsnefndin var 18 mánuði að svara annarri kæru FA vegna sáttarinnar, sem sneri að sendibílaþjónustu Póstsins. Það væri fáránlegt ef það tæki samkeppnisyfirvöld jafnlangan tíma að bregðast við í þessu máli.“

Kostnaðurinn sóttur til skattgreiðenda?
Ólafur segir að með því að koma sér hjá því að reikna vexti á lán ePósts hafi Íslandspóstur falið hið raunverulega tap á fyrirtækinu, sem sé nálægt hálfum milljarði króna. „Með því að sameina félögin býr Íslandspóstur sér svo til möguleika á að skrá kostnaðinn vegna ePósts á alþjónustuna og krefjast þess að hann verði bættur úr sameiginlegum sjóðum eins og annar taprekstur fyrirtækisins. Þetta mál sýnir enn og aftur fram á þörfina á að gerð verði óháð úttekt á rekstri Íslandspósts og öllum þeim röngu ákvörðunum sem þar hafa verið teknar, ekki síst um samkeppnisrekstur eins og ePóst,“ segir Ólafur.

Hér má lesa fleiri fréttir um málefni Íslandspósts:

Hér má lesa pistla um málefni Íslandspósts: