Samfylking mælist með 8,2% fylgi í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var nú í morgun.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 29,3% fylgi en það er töluverð aukning frá síðastu skoðanakönnun Gallup sem birt var þann 2. nóvember, en þá mældist fylgi flokksins 24,6%.

Píratar eru ennþá stærstir en fylgi þeirra mælist nú 36,6%. Björt framtíð myndi ekki ná inn manni en fylgi þeirra mælist einungis 2,9%. Framsóknarflokkurinn og Vinstri hreyfingin - Grænt framboð eru jöfn og mælast með 9,9% fylgi. Aðrir flokkar eru með 3,6%