Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 20,3%, nær óbreytt frá mælingu MMR í desember.

Mældist Samfylkingin með 16,8% fylgi, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu mælingu en Miðflokkurinn mældist með 12,9% fylgi, rúmu prósentustigi minna en við síðustu mælingu.

Þá mældust Vinstri-græn með 11,1% fylgi og Píratar með 11,0% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 41,2%, samanborið við 39,0% í síðustu könnun.

Hér má sjá niðurstöður könnunarinnar, sem framkvæmd var 3. til 13. janúar og var heildarfjöldi svarenda 2.057:

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 20,3% og mældist 20,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,8% og mældist 14,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 12,9% og mældist 14,3% í síðustu könnnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 11,0% og mældist 11,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,5% og mældist 10,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,2% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,1% og mældist 5,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 3,5% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
  • Stuðningur við aðra mældist 1,5% samanlagt.