Í yfirlýsingu frá Logi Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar, um viðræðuslit fimm flokka um myndun nýrrar ríkisstjórnar, tekur hann fram að Samfylkingin sé leið yfir því að slitnaði upp úr viðræðunum. Hann taldi að þessir flokkar gætu myndað stjórn sem gætu unnið að „endurreisn heilbrigðis- og menntakerfis og nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum ásamt því að koma á  kerfisbreytingum í landbúnaði og sjávarútvegi.“

Logi telur jafnframt vel mögulegt að brúa bilið á milli flokkanna og lagði Samfylkingin til ýmsar hugmyndir um hvernig fjármagna mætti brýn verkefni, að hans sögn. Hann tekur fram að flokkurinn hafi verið ánægður með samvinnunna og hlakki til að taka upp þráðinn að nýju, reynist vilji hjá öðrum. Hér má sjá pistilinn í heild sinni:

Samfylkingin er leið yfir því að slitnað hafi upp úr viðræðum fimm flokka um myndun ríkisstjórnar. Við töldum góðan möguleika á að þessir flokkar gætu myndað umbótastjórn þar sem í senn yrði unnið að endurreisn heilbrigðis- og menntakerfis og nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum ásamt því að koma á  kerfisbreytingum í landbúnaði og sjávarútvegi. Við myndum líka vinna að umbóta- og framfaramálum s.s. loftslagsstefnu, atvinnumálum, auknu jafnrétti og nýrri stjórnarskrá, svo fátt eitt sé nefnt.


Við teljum vel mögulegt að brúa bilið á milli flokkanna og lögðum til ýmsar hugmyndir um hvernig mætti fjármagna brýn verkefni. Okkur finnst mikill árangur hafa náðst í viðræðum milli þessara fimm flokka, bæði undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Birgittu Jónsdóttur. Við erum ánægð með samvinnuna við frábært fólk í öllum þessum flokkum og hlökkum til að taka upp þráðinn að nýju, reynist vilji til þess hjá öðrum.