Samkvæmt nýjum Þjóðarpúls Gallup sem tekinn var frá 3. febrúar til 1. mars, lækkar fylgi Samfylkingarinnar um þrjú prósentustig janúarmælingu Gallup, en flokkurinn er enn sá næst stærsti á eftir Sjálfstæðisflokknum sem heldur sæti sínu sem stærsti flokkurinn með 22%.

Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Vinstri græn auka fylgi sitt en Samfylkingin eins og áður segir tapar fylgi.

Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga eftir mikla fylgisaukningu í janúar, en næstum 15% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.

Fylgi Miðflokksins eykst um nær tvö prósentustig en rúmlega 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú.
Fylgi Sósíalistaflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig, en 5% segjast myndu kjósa flokkinn, og fylgi Vinstri grænna eykst um rösklega eitt prósentustig en nær 12% segjast myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,0-0,8 prósentustig. Slétt 22% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 11% Pírata, ríflega 10% Viðreisn, 7% Framsóknarflokkinn og 4% Flokk fólksins.

Næstum 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og liðlega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um nær tvö prósentustig milli mælinga og segjast rúmlega 48% þeirra sem taka
afstöðu styðja hana.