Samtök atvinnulífsins (SA) hafa ákveðið að setja á laggirnar starfshóp um samgöngumál en þetta kemur fram á vef SA.

Þar kemur fram að tilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að móta almenna stefnu samtakanna um samgöngumál og hins vegar að annast samráð af hálfu atvinnulífsins við samgönguráð vegna mótunar samgönguáætlunar 2011 - 2022.

Hópurinn mun því fjalla um vegasamgöngur, flug og flugvelli, siglingar og hafnir.

Sjá nánar á vef SA.