Kristján L. Möller, samgönguráðherra tók í dag við fyrsta eintaki nýrrar flugvélamyndabókar Baldurs Sveinssonar.

Á vef samgönguráðuneytisins kemur fram að ráðherrann sagði við þetta tilefni bókina hafa að geyma mikilvæga skráningu á starfi grasrótar í fluginu.

Samgönguráðherra fagnaði útkomu bókarinnar og kvaðst hafa haft ánægju af fyrri bókinni. Hann sagði þann hóp flugmanna og flugvirkja og flugáhugamanna sem byggt hafi upp íslenskt flug hafa lagt fram mikilvægan skerf í samgöngum þjóðarinnar.

Í tilkynningu frá útgefanda kemur fram að bókin Flugvélar 2008 er 120 blaðsíður í A4 langbroti og inniheldur 152 ljósmyndir sem allar voru teknar á árinu 2008.

„Baldur hefur í meira en fjóra áratugi myndað flugvélar á og yfir Íslandi og hafa myndir hans birst í fjölmörgum blöðum, tímaritum og vefsíðum,“ segir í tilkynningunni.

Í bók Baldurs Sveinssonar má sjá grasrótina í íslenska einkafluginu, svipmyndir frá flugdögum sumarsins og fjölskylduflugmótum í sveitaumhverfi.

Einnig eru myndir frá komum frægra erlendra gestavéla eins og t.d. Boeing B-17 Fljúgandi virki yfir Suðurlandi. Myndir frá loftrýmisgæslu Frakka og loftvarnaræfingunni Norður Víkingur 2008 eru einnig í bókinni svo og myndir frá frægri komu silfurliðsins í handbolta þegar Boeing 757 þota Icelandair flaug yfir Reykjavíkurflugvöll áður en hún lenti með liðið á vellinum.